Við erum með 7 herbergi og vandað sumarhús. Hvert herbergi er með sjónvarpi og internetaðgangi. Húsið er nýuppgert og þar er góð morgunverðar aðstaða. Notaleg setustofa er einnig á staðnum.
Lindartún Guesthouse er frábær viðkomustaður á ferðalagi meðfram hinni frægu suðurströnd Íslands. Það er utan alfaraleiðar og samt svo nálægt öllum helstu aðdráttaraflunum. Það er frábær staður til að sjá norðurljós á veturna og njóta endalausrar dagsbirtu í maí, júní og byrjun júlí.
Morgunverður er borinn fram frá 8-9:30 á hverjum morgni frá tímabilinu 1. júní til 15. september (morgunverður er ekki innifalinn í verðinu og þessar dagsetningar geta breyst með stuttum fyrirvara). Í morgunverðinum er vöfflujárn og gestum er frjálst að búa til ferskar vöfflur. Gestum er einnig velkomið að fá sér kaffi eða te þegar þeir vilja og er frjálst að nota eldhúsið til að elda á kvöldin milli 17:00 – 21:30.